Straumar - styrkir auglýstir til umsóknar
Straumar er verkefni sem styrkir ungt listafólk ættað af Vestfjörðum til að koma og deila sköpun sinni á heimaslóðum.
02. mars 2019
Tilgangurinn með verkefninu er margþættur, að hvetja listamenn til að túlka uppruna sinn í verkum sínum, að átta sig á því hvers vegna þeir fluttu burt og togstreitunni á milli heimahaganna og hins stóra heims.
Verkefnið er ætlað fólki á aldrinum 20-35 ára sem hefur lokið viðurkenndu listnámi, starfar sem listamenn eða stundar nám sem mun leiða til viðurkenndrar prófgráðu í listum, hönnun og skapandi greinum.
Umsóknarfrestur fyrir árið 2019 rann út mánudaginn 18. mars 2019.