Fara í efni

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða

Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður sem hefur það hlutverk að styrkja verkefni sem falla að Sóknaráætlun Vestfjarða. Styrkirnir eru tvennskonar; verkefnastyrkir til atvinnuþróunar, nýsköpunar og á sviði menningar ásamt stofn- og rekstrarstyrki á sviði menningar. Vestfjarðastofa annast umsýslu sjóðsins í landshlutanum fyrir hönd Fjórðungssambands Vestfirðinga og er auglýst einu sinni á ári eftir umsóknum um styrki.

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða styrkir nýsköpun, uppbyggingu atvinnulífs og menningarstarf á Vestfjörðum.

Vinnustofur fyrir umsækjendur í Uppbyggingarsjóð Vestfjarða verða haldnar á starfsstöðvum Vestfjarðastofu 6.–8. október næstkomandi. Þeim sem hafa áhuga á að sækja um í sjóðinn eða eru að vinna að umsókn býðst kostur á að mæta og fá ráðgjöf frá starfsfólki Vestfjarðastofu.

Vinnustofurnar verða opnar milli kl. 16 og 18, sem hér segir:

Hólmavík – þriðjudaginn 6. október, Hnyðja
Patreksfjörður – miðvikudaginn 7. október, Ólafshús
Ísafjörður – fimmtudaginn 8. október, Vestfjarðastofa

Utan þessa tíma geta umsækjendur einnig bókað tíma hjá ráðgjöfum Vestfjarðastofu.

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða styrkir verkefni á sviði menningar, nýsköpunar og atvinnuþróunar, auk þess að vita stofn- og rekstrarstyrki. Um 48 milljónir króna eru til úthlutunar að þessu sinni vegna verkefna sem koma til framkvæmda á Vestfjörðum árið 2027, 13 milljónum til viðbótar hefur þegar verið ráðstafað í fjölárastyrki.

Umsóknir þurfa að falla að markmiðum og áherslum Sóknaráætlunar Vestfjarða 2025–2029. Umsóknarfrestur er til kl. 14:00 miðvikudaginn 21. október 2026.

 

Hvar sæki ég um?

 

Umsóknargluggi vegna verkefna ársins 2027 er opinn til 21. október kl. 14:00. 

 

 

Hvernig verkefni eru styrkhæf?

 

Veittir eru tvenns konar styrkir úr Uppbyggingarsjóð Vestfjarða;

  • Verkefnastyrkir til atvinnuþróunar, nýsköpunar og á sviði menningar
  • Stofn og rekstrarstyrkir til menningarstofnana

Að jafnaði er litið til verkefna sem efla listir, menningu, nýsköpun og atvinnuþróun á svæðinu og fjölgun atvinnutækifæra. Þá er horft til verkefna sem stuðla að vöruþróun og gæðum hönnunar, auka fagmennsku á sviði lista og menningar, styðja við uppbyggingu og eflingu menningartengdrar ferðaþjónstu og eru gjaldeyrisskapandi.

Umsóknir þurfa að falla að markmiðum og áherslum gildandi Sóknaráætlunar Vestfjarða 2025-2029

Uppbyggingarsjóður styrkir ekki meira en 50% af styrkhæfum heildarkostnaði verkefna.    

Frekari upplýsingar um áherslur og úthlutnarreglur má finna hér -
Úthlutunarreglur fyrir 2027

 

Hvernig gengur úthlutunin fyrir sig?

 

Fagráð og úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs eru kosin er á Fjórðungsþingi Vestfirðinga. Þau annast val verkefna að undangengnu umsóknarferli. Fagráð menningar og nýsköpunar velja hvaða verkefni skulu hljóta styrk en úthlutunarnefnd ákvarðar styrkupphæðir.

Áherslur úthlutana byggja á gildandi Sóknaráætlun Vestfjarða. Árlega er úthlutað um 50 milljónum króna úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða.  

 

Skýrslur  

Loka- og framvinduskýrslur vegna verkefna ársins 2026 og síðar:
Smelltu hér til að skila skýrslum

Vegna verkefna áranna 2025 og eldri:
Smelltu hér til að fylla út lokaskýrslu
Smelltu hér til að fylla út framvinduskýrslu

 

Önnur tungumál
Click here for instructions in English
Informacje o Funduszu Rozwoju Fiordów Zachodnich w języku polskim

Tengdar fréttir