Fara í efni

Bíldudalsskóli - Umsjónarkennari á yngsta stigi

Störf í boði

Í Bíldu­dals­skóla eru 21 nemendur í 1.-10.bekk. Bíldu­dals­skóli vinnur með Uppbygg­ing­ar­stefnuna að leið­ar­ljósi. Áherslur skólans eru fjöl­breyttir kennslu­hættir, einstak­lings­miðað nám, samþætting náms­greina þar sem grunn­þættir mennt­unar endur­speglast í skóla­starfi. Lögð er áhersla á teymis­kennslu.

Starfssvið

  • 100% starf kennara með sérhæfða hæfni í kennslu á yngsta stigi
  • Taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og mótum á skólastarfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar og hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Sérhæfð hæfni á yngsta stigi grunnskóla
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Áhugi á að starfa með börnum í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Reynsla af teymisvinnu kostur

Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2024

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélags. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.

Frekari upplýsingar gefur Lilja Rut Rúnarsdóttir, skólastjóri og tekur hún á móti umsóknum. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

liljarut@vesturbyggd.is  

450-2333