Fara í efni

Verkfærakistan

Þessi síða er í stöðugri þróun. Allar ábendingar og tillögur eru vel þegnar.

Hér eru nokkur verkfæri sem eru nytsamleg til ýmissa hluta. Þau eru ýmist ókeypis eða mjög ódýr.

Skapa.is 
Nýsköpunargátt með upplýsingum fyrir frumkvöðla og yfirliti yfir stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi. Aðgengileg og góð síða þar sem frumkvöðlar finna allt á einum stað.

Wikipedia
Wikipedia er ókeypis alfræðirit á vefnum. Hver sem er getur sett inn upplýsingar þar, svo í raun er ekki hægt að treysta upplýsingum þar í blindni, en misnotkun er fátíð. Það er mjög mikilvægt að hafa öll helstu hugtök inni á Wikipedia. Leitarvélar setja það oft sem fyrsta kost í niðurstöðum og almennt ríkir traust á upplýsingum sem þar er að finna. Prófaðu að slá inn nokkur lykilorð sem tengjast þinni starfsemi. Ef þau er ekki að finna geturðu skráð grein og sett myndir með.
Leiðbeiningar um hvernig á að skrá greinar inn á Wikipedia er að finna hér 

Google Maps
Leiðbeiningar um hvernig á að setja nýjan stað inn á Google Maps. Best er að gera þetta í símanum.
1) Opnaðu Google Maps.
2) Smelltu á rétta staðsetningu. Rauður pinni kemur á staðinn.
3) Smelltu neðst á skjáinn og skrollaðu niður. Neðst geturðu smellt á „Add a missing place“
4) Fylltu inn allar upplýsingar.
Myndband sem sýnir hvernig þetta er gert er að finna hér

Frumkvöðlar og stofnendur fyrirtækja
Hér má finna leiðbeiningar um hvernig á að stofna fyrirtæki.

Sting
Safn af reynslu og sérfræðiþekkingu frá nokkrum af fremstu frumkvöðlum Svíþjóðar á stafrænu hraðnámskeiði sem ætlað er að útbúa upprennandi frumkvöðla.

Ráðgjöf
Bizmentors International bjóða upp á ókeypis viðtöl og aðstoð við frumkvöðla. Frekari upplýsingar er hægt að finna á síðunni þeirra hér:

Hönnun - Lógó-hönnun
Gott lógó eða ímyndarmerki er afar mikilvægt. Það þarf að vera smart í útliti, virka bæði agnarsmátt og risastórt. Mörg góð logo hafa einhverskonar myndræna tengingu við starfsemina eða staðsetninguna. Það er góð fjárfesting að fá grafískan hönnuð til að hanna lógó. Það er stór hluti af ímynd fyrirtækisins og endist árum eða áratugum saman.
Hér er síða til að gera ókeypis lógó.

Til að hanna auglýsingaefni
Canva er góður og auðskiljanlegur vettvangur til að búa til kynningarefni og auglýsingar.

Til að búa til vefsíður:
Grunnurinn að kynningarstarfi á netinu er vefsíða. Þar þarf að vera hægt að finna á einfaldan og aðgengilegan hátt upplýsingar um fyrirtækið eða verkefnið. Hafið í huga að bestu vefirnir eru oft þeir einföldustu. Hér fyrir neðan er að finna nokkrar síður með flottum og einföldu kynningarefni.
1) Weebly
2) Squarespace
3) Wix

Til að nálgast ókeypis hágæða ljósmyndir
Oft vantar góðar ljósmyndir, en það þarf að gæta vel að höfundarrétti. Munið að það er stundum einfaldara og fljótlegra að fara bara út og taka myndina sem vantar en að leita tímunum saman á netinu. En fyrir þá sem ekki geta tekið sína eigin myndir þá eru til síður til að einfalda málin. 
Pexels
Unsplash

Til að klippa myndbönd
Myndbönd segja oft meira en ljósmyndir, þau eru vinsælli en líka vandmeðfarin.
Hér er að finna síðu með 10 atriðum sem er gott að hafa í huga þegar búin eru til myndbönd

Myndbönd þurfa að vera vel klippt og umfram allt stutt. Vanda ber hljóðsetningu myndbanda.
Á þessari síðu er að finna mikilvægar og umfram allt greinagóðar upplýsingar um ferlið. 

Öpp til að fá borgað fyrir kennslu/ráðgjöf á netinu
Eagledial

Til að gera aðdáendur að áskrifendum
Á síðunni Patreon er að finna besta staðinn til að byggja upp samfélag með stærstu aðdáendum þínum og breyta ástríðu sinni í varanleg skapandi viðskipti.

Til að finna gamalt efni á vefinum
Vefsafn aðstoðar við að finna íslenskt efni.
Waybackmachine aðstoðar við að finna erlent efni. 

Ókeypis námskeið
Það er hægt að sækja sér ýmsa þekkingu sem mann skortir sér að kostnaðarlausu á netinu.
Hér má finna 450 ókeypis námskeið sem bestu skólar Bandaríkjanna (svokallaðir Ivy League skólar) bjóða upp á.
Hér er að finna námskeið í öllu mögulegu.
MIT (Massachusetts Institute of Technology) býður upp á fjölda ókeypis netnámskeiða.

Marvel er samstarfsvettvangur hönnunarteyma og er að finna hér.

Morrow er hnattrænt netsamfélag sprotafyrirtækja, hraðala og fjárfesta og þá er að finna hér.