Fara í efni

Dægradvöl Ísafirði – Stuðningsfulltrúar og frístundaleiðbeinandi

Störf í boði

Laus eru til umsóknar þrjú störf í dægradvöl á Ísafirði. Störfin eru tímabundin frá 12. ágúst nk. til 6. júní 2025. Annars vegar er um að ræða tvö störf stuðningsfulltrúa og hins vegar eitt starf frístundaleiðbeinanda. Vinnutíminn er frá 13:00 til 16:00 (42% starfshlutfall) alla virka daga. Næsti yfirmaður er forstöðumaður dægradvalar. Störfin eru afar skemmtileg, lífleg og gefandi.

Helstu verkefni:

  • Þátttaka í uppeldisstarfi þar sem megináhersla er lögð á velferð og vellíðan barns/barna
  • Full þátttaka í öllu dagskipulagi dægradvalar og frístundar
  • Samstarf við foreldra

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Nám í uppeldis- eða tómstundafræðum æskilegt (frístundaleiðbeinandi)
  • Nám fyrir stuðningsfulltrúa eða sambærilegt nám æskilegt (stuðningsfulltrúi)
  • Reglusemi
  • Jákvæðni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Starfsreynsla á frístundasviði kostur
  • Vera orðin(n) 18 ára

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við Kjöl/VerkVest.

Umsóknarfrestur er til og með 24. júní 2024. Umsóknum skal skilað til Evu Maríu Einarsdóttur, forstöðumanns, í netfangið evaei@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eva María í síma: 450-8059 eða í gegnum tölvupóst.

Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-