Fara í efni

Deildarstjóri á unglingastigi – Grunnskólinn á Ísafirði

Störf í boði

Grunnskólinn á Ísafirði auglýsir starf deildarstjóra á unglingastigi laust til umsóknar. Um er að ræða 100% starf frá 1. ágúst 2024, en hluti starfsins felur jafnframt í sér hefðbundna kennslu á unglingastigi. Leitað er eftir metnaðarfullum og drífandi kennara sem sýnir frumkvæði í starfi.

Skólinn er byggður sem einsetinn skóli með um það bil 380 nemendur og fer öll kennsla fram undir sama þaki, utan íþrótta- og sundkennslu. Undanfarin ár hefur skólinn unnið eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og innleitt kennsluaðferðir leiðsagnarnáms. Skólinn er í góðu og öflugu samstarfi við íþróttahreyfinguna og listaskóla bæjarins en á Ísafirði er fjölbreytt samfélag þar sem hreyfing og menning skipa stóran sess.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón með deildarfundum unglingastigs, boðun funda, umsjón með dagskrá og fundarritun og eftirfylgni ákvarðana
  • Kemur að skipulagningu viðburða er varða unglingastigið, í samstarfi með kennurum
  • Kennsla á unglingastigi
  • Er tengiliður skólans við nemendaráð, samtök nemenda og félagsmiðstöð
  • Er milligöngumaður varðandi félagslíf nemenda 8.-10. bekkjar innan skólans
  • Aðkoma að agamálum, fundar með kennurum, nemendum og foreldrum eftir því sem við á
  • Tengiliður við námsráðgjafa hvað varðar verkefni á unglingastigi
  • Situr fundi nemendaverndarráðs
  • Umsjón með valgreinum
  • Fylgist með að kennsluáætlanir séu gerðar og aðgengilegar
  • Skrifar skýrslu um starf skólaársins

Menntunar og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun
  • Leiðtogahæfni
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og metnaður
  • Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku, önnur tungumál kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ.

Umsóknum skal skilað til Kristjáns Arnars Ingasonar skólastjóra á netfangið kristjanin@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og leyfisbréf. Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2024.

Allar nánari upplýsingar veitir Kristján Arnar í síma 450-8300 eða í gegnum tölvupóst.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-