Vesturbyggð auglýsir eftir forstöðumanni í félagsmiðstöðina Dímon á Bíldudal. Um er að ræða alla umsjón með félagsmiðstöðinni veturinn 2021-2022 hið minnsta.
Umsjón með starfi í Dímon felst í skipulagningu á innra starfinu sem og þrifum þess og háttar. Félagsmiðstöðin er opin tvö kvöld í viku í tvo tíma í senn og er starfið ætlað fyrir unglinga úr 8.-10. bekk en fá 5-7. bekkingar að mæta á sérstaklega auglýsta viðburði.
Félagsmiðstöðvar á sunnanverðum Vestfjörðum starfa náið saman og sameiginlegir viðburðir eru haldnir einu sinni í mánuði.
- Kaup og kjör fara eftir kjarasamningum Félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum
- Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
- Fyrra starf og/eða nám nýtist í starfi er kostur
- Sjálfstæð vinnubrögð, stundvísi og jákvætt viðmót skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 25. október 2021
Nánari upplýsingar veita Guðný Lilja Pálsdóttir, íþrótta- og tómstundafulltrúi it@vesturbyggd.is og Arnheiður Jónsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs. arnheidur@vesturbyggd.is