Framkvæmdastjóri fjármála
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra fjármála. Við leitum að framsýnum einstaklingi með yfirgripsmikla fjármálareynslu sem býr yfir frumkvæði, umhyggju og umbótavilja.
Í starfingu felst dagleg stjórnun fjármálasviðs með ábyrgð á fjármálum, reikningshaldi, launum, innkaupum, umsjón fasteigna og upplýsingatækni. Staðan tilheyrir framkvæmdastjórn og heyrir beint undir forstjóra. Aðrir starfsmenn fjármálsviðs eru sex.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 250 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum. Miklar umbætur hafa átt sér stað á síðustu árum en fjölmörg tækifæri eru til að taka þær umbætur áfram og enn margt ógert
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis.
- Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri sviðsins
- Ábyrgð á mánaðaruppgjörum og gerð ársreiknings
- Ábyrgð á gerð rekstraryfirlita, eftirfylgni og eftirlit með rekstri
- Ábyrgð á tölfræðiúrvinnslu
- Fjárhagsáætlana- og samningagerð
- Fjárhagsleg samskipti við fjölbreytta hagsmunaaðila og stofnanir
- Þátttaka í stjórnun innkaupa
- Háskólanám sem nýtist í starfi s.s. viðskiptafræði og hagfræði, framhaldsnám æskilegt
- Góð þekking á greiningartólum (Excel, viðskiptagreind)
- Reynsla af fjármálastjórn, reikningshaldi, launavinnslu og/eða mannaforráðum
- Þekking á Oracle-kerfi ríkisins (Orra) er kostur
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Góðir leiðtoga- og samskiptahæfileikar
- Frumkvæði, áreiðanleiki og árangurs- og þjónustumiðað viðhorf
- Hæfni í samningatækni og samningagerð