Hafnir Ísafjarðarbæjar auglýsa laust til umsóknar 50% starf hafnarvarðar með starfsstöð á Flateyri. Æskilegast er að viðkomandi hafi búsetu á Flateyri og geti hafið störf þann 1. júlí 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Starfið felur í sér vinnu við móttöku skipa og afgreiðslu á þeirri þjónustu sem höfnin býður upp á. Megin starfsstöð hafnarvarðar verður á Flateyrarhöfn en viðkomandi mun einnig sinna verkefnum á öðrum höfnum bæjarins þegar svo ber undir. Næsti yfirmaður er hafnarstjóri.
Meginverkefni:
- Vigtun sjávarafla fiskiskipa og skráning
- Móttaka skipa
- Samskipti við sjómenn, fyrirtæki og aðra samstarfsaðila hafnanna
- Viðhaldsvinna og þrif
- Snjómokstur
- Önnur almenn hafnar- og verkamannastörf
Menntun og hæfniskröfur:
- Löggilding vigtarmanns kostur
- Uppfylla reglur um hæfi vigtarmanna, 20 ára aldurstakmark
- Góð samskiptafærni, þjónustulund og jákvætt viðhorf
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og handlagni
- Gott líkamlegt ástand
- Góð almenn tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku og enskukunnátta kostur
- Bílpróf, réttindi á vinnuvélar og/eða lyftara kostur
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjöl/VerkVest).
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hilmar Kristjánsson Lyngmo hafnarstjóri í síma 450-8081 eða í gegnum neðangreindan tölvupóst.
Umsóknarfrestur er til og með 6. júní 2024. Umsóknir skulu sendar til hafnarstjóra á netfangið hofn@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af prófskírteinum.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-