Fara í efni

Háskólasetur Vestfjarða — Verkefnastjóri

Störf í boði

Háskólasetur Vestfjarða leitar að verkefnastjóra í 50% starf. Verkefnastjórinn aðstoðar við fjölbreytt verkefni innan Háskólaseturs, m.a. að skipuleggja nemendaferðir og nemendaheimsóknir, hafa yfirumsjón með Vísindaporti, sinna textaskrifum, halda utan um ráðstefnur og aðrar uppákomur hjá Háskólasetri og sjá um fjarnámið. Verkefnastjórinn vinnur í litlu en framsæknu háskóla- og rannsóknarumhverfi á Ísafirði og hefur rík tækifæri til að sýna frumkvæði. Verkefnastjórinn mun vinna í litlu teymi en þarf að geta unnið sjálfstætt á sínu sviði.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
  • Skipulagshæfni
  • Innsæi og metnaður í starfi
  • Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi

Verkefnastjóri ætti að geta hafið störf á haustmisseri 2024. Upplýsingar veitir Peter Weiss, forstöðumaður, í síma 450 3045 eða weiss@uw.is.

Umsóknir (kynningarbréf og ferilskrá), sendist á Háskólasetur Vestfjarða eða í tölvupósti á weiss@uw.is.

Umsóknarfrestur er til og með 08.07.2024.