Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða geilsafræðing í starf deildarstjóra við myndgreiningardeild stofnunarinnar á Ísafirði. Starfshlutfall er 70 - 100% eða skv. samkomulagi, dagvinna með bakvöktum.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 270 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis.
Ísafjarðarbær er paradís útivistarfólks og skiptir þá litlu í hvaða byggðarkjarna eða sveit fólk kemur sér fyrir. Óvíða ef nokkurs staðar er jafn stutt að fara úr iðandi mannlífi yfir í ósnortna náttúru og möguleikar til útivistar eru óteljandi, hvort sem er að sumri eða vetri.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Ber ábyrgð á mönnun, rekstri og þjónustu myndgreiningardeildar.
-
Starfar samkvæmt lögum sem eiga við hverju sinni og fylgir þeim stefnum, áherslum og markmiðum sem sett hafa verið við stofnunina er kemur að þjónustu, mannauði og rekstri.
-
Skipuleggur og stýrir vinnslu myndgreininga og annarri starfsemi. Ber ábyrgð á að gæði myndgreininga séu tryggð og að þjónustan sé í samræmi við bestu þekkingu á hverjum tíma.
-
Deildarstjóri vinnur dagleg störf á myndgreiningardeild sjúkrahússins og sinnir bakvöktum sem almennur geislafræðingur til móts við annað starfsfólk deildarinnar.
Hæfniskröfur
-
Íslenskt starfsleyfi sem geislafræðingur
-
Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að vinna í teymi
-
Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf
-
Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
-
Íslenskukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.05.2024
Nánari upplýsingar veitir
Súsanna Björg Ástvaldsdóttir, susannaba@hvest.is
Sími: 450 4500