Fara í efni

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða - Ertu sjúkraliði og vilt breyta til? Laus störf á Ísafirði og í Bolungarvík

Störf í boði

Við leitum að sjúkraliðum til starfa bæði á Eyri á Ísafirði og Berg í Bolungarvík. Um mismunandi vaktir og starfshlutfall er að ræða.

Gefandi og skemmtilegt starf sem hentar fólki á öllum aldri og öllum kynjum.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 270 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.

Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs.

Helstu verkefni og ábyrgð

Aðhlynning og önnur tilfallandi verkefni.

Hæfniskröfur

  • Góð samskiptahæfni, jákvæðni og rík þjónustulund

  • Samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð

  • Stundvísi

  • Metnaður og ábyrgð í starfi

  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur

  • Íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu.

Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.

Starfshlutfall er 20-100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.07.2024

Nánari upplýsingar veitir

Auður Helga Ólafsdóttir, audur.olafsdottir@hvest.is

Sími: 692 3580

Sækja um starf