Fara í efni

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða - Móttökuritari á Ísafirði

Störf í boði

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða leitar að þjónustuliprum, jákvæðum og sjálfstæðum einstakling til starfa í móttökunni á Ísafirði. Um er að ræða 100% starf eða eftir nánara samkomulagi.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 300 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni móttökuritara eru móttaka viðskiptavina, tímabókanir, símsvörun, upplýsingagjöf, skráning í sjúkraskráningarkerfið Saga, móttaka greiðslu, uppgjör í lok dags, almenn skrifstofustörf og önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnanda.

Móttaka og símsvörun er opin á milli 8:00 til 15:00 en stofnunin hefur innleitt betri vinnutíma með fullri vinnutímastyttingu.

Megin starfsstöð er á Ísafirði en móttökuritarar veita þjónustu fyrir alla stofnunina í gegnum síma, fjartækni, tölvupóst, vef- og samfélagsmiðla. Þjónusta er einnig á heilsugæsluseljum á norðursvæði (útstöðvar).

Hæfniskröfur

  • Jákvætt viðmót, lipurð í samskiptum og fagleg framkoma

  • Stúdentspróf og/eða menntun í heilbrigðisgreinum kostur

  • Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi

  • Hæfni og geta til að starfa í teymi

  • Góð tölvukunnátta

  • Góð íslensku og enskukunnátta áskilin

  • Stundvísi og áreiðanleiki

  • Reynsla af móttöku- eða þjónustustörfum æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum.Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum og umsögnum meðmælenda.Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu.

Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.08.2024

Nánari upplýsingar veitir

Hanna Þóra Hauksdóttir, hanna@hvest.is

Sími: 8496210

Sækja um starf