Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar að ráða hjúkrunarfræðing til starfa á sjúkradeild á Ísafirði. Um er að ræða 70-100% starf.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 300 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs og aðstoð við öflun húsnæðis.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrunarfræðingur sinnir almennum hjúkrunarstörfum á blandaðri sjúkradeild. Deildin sinnir auk þess sængurkonum og nýburum utan dagvinnu ljósmóður, annast göngudeild fyrir krabbameinslyfjagjafir og aðrar sérhæfðar lyfjagjafir auk þess að aðstoða við slysamóttöku á slysadeild utan dagvinnutíma. Hér er gott tækifæri fyrir reynslumikinn hjúkrunarfræðing sem langar að breyta um umhverfi. Þetta er einnig kjörin staða fyrir þá sem vilja öðlast fjölbreytta reynslu í alhliða hjúkrun.
Á deildinni starfar öflugur hópur um 25 hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða og er þar góður starfsandi sem einkennist af samheldni, vináttu, metnaði og gleði.
Hæfniskröfur
-
Íslenskt hjúkrunarleyfi
-
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
-
Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf í byrjun ágúst eða eftir samkomulagi.Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum og umsögnum meðmælenda.Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu.
Ísafjarðarbær- og Vestfirðir í heild- er paradís útivistarfólks og skiptir þá litlu í hvaða byggðarkjarna eða sveit fólk kemur sér fyrir. Óvíða ef nokkurs staðar er jafn stutt að fara úr iðandi mannlífi yfir í ósnortna náttúru og möguleikar til útivistar eru óteljandi, hvort sem er að sumri eða vetri.Tækifærin til útivistar eru allt um kring, enginn tími fer í ferðalög til og frá vinnu. Börnin eru eins og blóm í eggi í leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttastarfi, menntaskóla og jafnvel lýðskóla eða háskóla.Fullt af spennandi atvinnutækifærum fyrir maka og margvísleg starfsemi sem krefst háskólamenntunar á svæðinu, sjá til dæmis laus störf á vef Ísafjarðarbæjar.
Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.08.2024
Nánari upplýsingar veitir
Þórunn Pálsdóttir, thorunn@hvest.is
Sími: 450 4500