Fara í efni

Vesturbyggð - Íþróttakennari í Patreksskóla

Störf í boði

Patreksskóli leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmanni með mikla þekkingu og áhuga á skólastarfi. Um er að ræða 100% starf

Í Patreksskóla er gróskumikið skólastarf en meðal áherslna skólans er faglegt lærdómssamfélag, einstaklingsmiðað nám, leiðsagnarnám og samþætting námsgreina þar sem grunnþættir menntunar endurspeglast í skólastarfi. Íþróttalíf er gott og fjölbreytt og margir möguleikar fyrir öflugan íþróttakennara. Íþróttaaðstaða er mjög góð, í stóru íþróttahúsi með sundlaug.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsækjendur mega hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum. Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá.

Umsókn um starf skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil og afrit af leyfisbréfi ef við á og upplýsingar um umsagnaraðila.

Frekari upplýsingar gefur Ásdís Snót Guðmundsdóttir, asdissnot@vesturbyggd.is. Umsækjandi er aðstoðaður við að finna húnsæði og veittur er flutningsstyrkur. Umsóknir skulu berast á netfangið asdissnot@vesturbyggd.is fyrir 2. júní. Vesturbyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast almenna íþrótta- og sundkennslu fyrir skólann
  • Taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og mótum á skólastarfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Sérhæfð hæfni í kennslu íþrótta
  • Hefur ánægju af að starfa með börnum og unglingum
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Getur tileinkað sér skólastefnu Patreksskóla, s.s. Uppeldi til ábyrgðar o.fl.
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Faglegur metnaður

Sækja um starf