Fara í efni

Leikskólinn Eyrarskjól — Starfsfólk

Störf í boði

Leikskólinn Eyrarskjól óskar eftir starfsfólki fyrir haustið
Hefur þú gaman að börnum?

Finnst þér gaman að leika þér með leir? Kubba? Skapa?

Finnst þér prumpubrandarar enn fyndnir?

Þá er þetta rétti staðurinn fyrir þig!

Kæri vinur/vinkona, vertu velkomin á Leikskólann okkar Eyrarskjól á Ísafirði!

Við leitum að jákvæðum og lífsglöðum einstakling sem til er í að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika.

Við erum með nokkur störf í boði:

Leikskólakennara eða leiðbeinanda í 100% starf, vinnutími flakkar á milli 7:45-16:15.

Leikskólakennara eða leiðbeinanda í ca. 50% starf, vinnutími flakkar á milli 7:45-12:30.

Starfsmann sem er 18 ára eða eldri í hlutastarf, vinnutími ca. 14:00-16:15.

Viðkomandi þarf að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi.

Leikskólinn Eyrarskjól er 5 kjarna leikskóli staðsettur á Ísafirði þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Hjallastefnunnar.

Í Eyrarskjóli er skemmtilegt starfsfólk, einstök vinnustaðamenning og jákvæður skólabragur.

Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun ungra barna
Hafa gaman í vinnunni

Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennari eða önnur uppeldismenntun
Reynsla af vinnu með börnum
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Frumkvæði í starfi
Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi
Starfsfólk er í fríu fæði
Vinnustytting

Nánar um leikskólann og allar upplýsingar á heimasíðu Eyrarskjóls

Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Einarsdóttir, leikskólastýra. Vinsamlegast sendið póst á ingibjorgei@hjalli.is