08. september 2021
Störf í boði
Við leitum að starfsmanni í verslun Lyfju á Ísafirði.
Um er að ræða tímabundið starf við sölu og þjónustu fram til áramóta. Viðkomandi þarf að hafa góða þjónustulund, vera jákvæður og kurteis.
Helstu verkefni:
- Almenn afgreiðslustörf
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Afgreiðsla á kassa
- Áfyllingar í verslun
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hæfniskröfur:
- Rík þjónustulund
- Áhugi á mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og gott viðmót
- Geta til að starfa undir álagi
- Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
- Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Allir umsækjendur þurfa að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og vera að minnsta kosti 20 ára og er um framtíðarstarf að ræða.
Nánari upplýsingar veitir Jónas Þ. Birgisson, lyfsali í s. 456 3009 / jonas@lyfja.is