Vesturbyggð auglýsir eftir ráðgjafa á fjölskyldusviði. Sveitarfélagið Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur reka sameiginlega félagsþjónustu og nær því starfssvæðið yfir bæði sveitarfélögin.
Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem er ábyrgur og getur unnið sjálfstætt í málaflokkum sem heyra undir fjölskyldusvið Vesturbyggðar.
- Unnið í þeim verkefnum sem falla undir félagsþjónustu og barnavernd
- Veitir ráðgefandi leiðbeiningar til stofnana sveitarfélagana sem og við samstarfsaðila í velferðarmálum vegna málefna barna og ungmenna.
- Unnið eftir lögum varðandi þá málaflokka sem falla undir fjölskyldusvið Vesturbyggðar s.s. málefni fatlaðs fólks, málefni barna og ungmenna, félagsleg ráðgjöf, jafnréttismál, innflytjendamál og málefni aldraðra
- Þátttaka í teymisvinnu og þverfaglegri samvinnu við aðrar starfseiningar innan fjölskyldusviðsins og innan sveitarfélagsins
- Móttaka og mat tilkynninga um óviðunandi aðbúnað barna skv. Barnaverndarlögum nr.80/2002
- Háskólapróf til starfsréttinda í félagsráðgjöf æskileg eða háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sambærileg starfi er kostur
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti skilyrði
- Enskukunnátta æskileg
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögum
- Rík og góð samskiptahæfni
- Jákvæðni og aðlögunarhæfni
- Hreint saka vottorð í samræmi við lög og reglur
Laun eru samkvæmt samningum sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1.september 2021
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldsviðs í síma 450 2300 eða arnheidur@vesturbyggd.is
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, starfsferil og fleira skal senda á netfangið vesturbyggd@vesturbyggd.is merkt Umsókn – Ráðgjafi á fjölskyldusviði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu í starfið