17. september 2021
Störf í boði
Við hjá Arctic Fish ehf. erum að leita að starfsmanni í viðhaldsdeild. Viðkomandi mun heyra undir rekstarstjóra sjódeildar og getur starfsstöðin verið á Ísafirði eða Þingeyri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón, aðstoð og samhæfing með viðhaldi báta, tækja, fóðurpramma félagsins á Vestfjörðum
- Ábyrgð og utanumhald um lögbundnar skoðanir á búnaði félagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og reynsla sem að nýtist í starfi, t.d vélavarsla, vélstjórn eða sambærilegt
- Reynsla og þekking úr rafvirkjun og viðhaldi tölvubúnaðar er kostur
- Góð tölvukunnátta
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og metnaður til að skila góðu starfi
- Stundvísi, áreiðanleiki og áhugi á verkefninu
Við hvetjum konur jafnt sem karla að sækja um. Umsóknir sendist til Elísabetar Samúelsdóttur mannauðsstjóra á es@afish.is. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veita Egill Ólafsson rekstrarstjóri í síma 869-0877 eða Elísabet Samúelsdóttir í síma 866-1334