Umhverfis- og eignasvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar 100% starf tækjamanns í þjónustumiðstöð/áhaldahúsi bæjarins. Leitað er eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf 3. janúar 2022. Næsti yfirmaður er forstöðumaður þjónustumiðstöðvar.
Helstu verkefni
- Stjórnun stærri tækja og þungavinnuvéla s.s. gröfu og götusóps
- Umsjón með tækjum og vinnuvélum, viðhald og viðgerðir
- Lagnavinna
- Gatnagerð
- Ýmiskonar viðhald s.s. viðhald gatna, gönguleiða, holræsa og vatnslagna
- Ýmiskonar flutningur og önnur þjónusta við stofnanir bæjarins
Hæfniskröfur
- Meirapróf
- Vinnuvélaréttindi
- Iðnmenntun kostur
- Góð samskiptafærni, sveigjanleiki og rík þjónustulund
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (FosVest/VerkVest).
Umsóknarfrestur er til og með 27. október 2021. Umsókn, afrit af prófskírteinum og ferilskrá skal senda til mannauðsstjóra á netfangið baldurjo@isafjordur.is. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Nánari upplýsingar veitir Kristján Andri Guðjónsson, í síma 620-7634 eða í tölvupósti: ahaldahus@isafjordur.is.