Umhverfisstofnun leitar að starfsmanni með þekkingu á umhverfisvernd og efnamálum í öflugt teymi sérfræðinga þar sem lögð er áhersla á þverfaglega teymisvinnu og samvinnu innanlands sem utan. Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi með framúrskarandi samskiptahæfni og hæfileika til að vera leiðandi á sínu fagsviði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlit með markaðssetningu á vörum sem innihalda hættuleg efni
- Innleiðing Evrópulöggjafar um efni
- Þátttaka í erlendu samstarfi um framkvæmd málaflokksins
- Upplýsingamiðlun og samskipti við ráðuneyti, stofnanir, atvinnulíf og neytendur
Hæfniskröfur
- Meistarapróf í efnafræði er krafa
- Reynsla af stjórnun verkefna er kostur
- Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
- Reynsla af að starfa í teymi er kostur
- Góð kunnátta í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli er skilyrði
- Þekking á umhverfismálum
- Samskiptahæfni, frumkvæði og drifkraftur
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Ráðið verður í starfið tímabundið til eins árs frá 1. janúar 2022 með möguleika á framlengingu.
Starfsaðstaða sérfræðingsins getur verið í Reykjavík, Hellissandi, Patreksfirði, Ísafirði, Akureyri, Mývatni, Egilsstöðum, Hellu eða Vestmannaeyjum; allt eftir búsetu.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Sjá nánari upplýsingar um Umhverfisstofnun á www.umhverfisstofnun.is.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.09.2021
Nánari upplýsingar veitir
Skúli Þórðarson - skuli@ust.is - 5912000
Þóra Margrét Pálsdóttir Briem - thoram@ust.is - 5912000