Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í búsetuþjónustu fatlaðs fólks. Um er að ræða 75% starf í vaktavinnu. Starfið er tímabundið frá 1. ágúst til loka febrúarmánaðar 2025 með möguleika á framlengingu.
Óskað er eftir jákvæðum og drífandi einstaklingi sem hefur ánægju af samskiptum en starfið er afar fjölbreytt og gefandi.
Helstu verkefni
- Aðstoða þjónustunotendur við athafnir daglegs lífs
- Félagslegur stuðningur
- Góð samskipti og samstarf við þjónustunotendur og aðstandendur
- Þátttaka í starfsmannafundum og samvinna við samstarfsfólk
- Framfylgja vinnureglum sem ákveðnar eru og stuðla með því að samræmdum vinnubrögðum
Hæfniskröfur
- Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Samviskusemi og stundvísi
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Frumkvæði og þolinmæði
- Góð íslenskukunnátta
- Bílpróf
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjöl/VerkVest).
Umsóknarfrestur er til og með 28. júní 2024. Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað á netfangið ragnhildursv@isafjordur.is. Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Inga Sveinsdóttir, forstöðumaður í búsetu í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreint netfang.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við hvetjum áhugasama, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
-Við þjónum með gleði til gagns-