Minjasafn Egils Ólafssonar og sveitarfélagið Vesturbyggð auglýsa eftir umsóknum um starf verkefnastjóra í Vatneyrarbúð á Patreksfirði. Um er að ræða tímabundið starf til 3 mánaða.
Verkefnastjóri mun sjá um skráningu þeirra muna sem tilheyra Vatneyrarbúð, sem er friðlýst hús í eigu Vesturbyggðar. Þá mun verkefnastjóri að lokinni skráningu vinna tillögur að uppsetningu munanna, vinna upplýsingaskilti og skipuleggja yfirlitssýningu munanna í samræmi við starfsemi nýsköpunar- og þekkingaseturs sem fram fer í húsinu. Þá er gert ráð fyrir að verkefnisstjóri muni halda utan um uppsetningu munanna í húsinu í samráði við Minjasafn Egils Ólafssonar og Vesturbyggð.
- Flokka og meta varðveislugildi muna í Vatneyrarbúð og skrá í samræmi við söfnunarstefnu Minjasafns Egils Ólafssonar
- Vinna tillögur að uppsetningu munanna í Vatneyrarbúð
- Skipuleggja yfirlitssýninguna í samræmi við starfsemi hússins
- Vinna upplýsingaskilti fyrir muni hússins
- Sér um uppsetningu munanna í Vatneyrarbúð að skráningu lokinni
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi skilyrði
- Áhugi á menningarstarfi og sköpunarkraftur
- Frumkvæði og sjálfstæði í störfum skilyrði
- Reynsla af safnastarfi og þekking á skráningu safnamuna æskileg
- Góð kunnátta í íslensku og ensku skilyrði
- Góð samskiptahæfni og skipulagshæfni æskileg
Starfið nýtur stuðnings Safnasjóðs og er ráðningasambandið við Minjasafn Egils Ólafssonar á Hnjóti.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið veitir safnastjóri Minjasafns Egils Ólafssonar á Hnjóti í síma 694 2703 og netfang museum@hnjotur.is.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, starfsferil og fleira skal senda á netfangið museum@hnjotur.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu í starfið.