Fara í efni

Verkamaður – Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar

Störf í boði

Auglýst er eftir umsækjendum fyrir starf verkamanns hjá Þjónustumiðstöð Ísafjarðarbæjar (áhaldahúsi). Um 100% ótímabundið starf er að ræða og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Vinnutími er milli kl. 07.30 – 16.25 virka daga, nema til hádegis á föstudögum. Umsóknarfrestur er til og með 26. febrúar 2024.

Helstu verkefni eru: Starfsmaður starfar við almenn verkamannastörf aðallega utanhúss, s.s. uppsetning umferðarskilta, holuviðgerðir, hellulögn, viðhald og viðgerðir og margt fleira.

Hæfniskröfur: Leitað er eftir kröftugum einstaklingi sem hefur áhuga á útivinnu. Viðkomandi þarf að vera stundvís, sveigjanleg(ur) og hafa jákvætt viðhorf til vinnunnar. Þarf að búa yfir góðri færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund. Almenn ökuréttindi eru skilyrði.

Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við VerkVest/Kjöl.

Umsóknum skal skilað til Kristjáns Andra Guðjónssonar, forstöðumanns Þjónustumiðstöðvar Ísafjarðarbæjar í tölvupósti á ahaldahus@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá. Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristján Andri í gegnum fyrrgreindan tölvupóst eða síma 620-7634. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-