Fara í efni

Vesturbyggð - Kennarar í Patreksskóla

Störf í boði

Viltu þú vera hluti af metn­að­ar­fullum starfs­manna­hópi þar sem skap­andi og fjöl­breyttir kennslu­hættir eru hafðir að leið­ar­ljósi? Í Patreks­skóla er grósku­mikið skólastarf en meðal áherslna skólans er faglegt lærdóms­sam­félag, einstak­lings­miðað nám, leið­sagn­arnám og samþætting náms­greina þar sem grunn­þættir mennt­unar endur­speglast í skóla­starfi. Lögð er áhersla á teymiskennslu/vinnu.

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • 100% starf kennara á yngsta stigi.
  • 100% starf kennara á unglingastigi.
  • 100% starf kennara með sérhæfða hæfni í list- og verkgreinum.
  • 100% starf kennara með sérhæfða hæfni í skólaíþróttum.
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum á grunnskólastig
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund