Leitað er að sérskennslustjóra til starfa á Arakletti á Patreksfirði í 50% starf. Óskað er eftir að hægt sé að hefja störf sem fyrst.
Araklettur er þriggja deilda leikskóli fyrir börn frá 14 mánaða – 6 ára. Við erum „Skóli á grænni grein“ og vinnum eftir „Lífsmenntarstefnunni“ (Living Values Education). Virðing, traust og gleði eru aðaláhersluþættir leikskólans. Við njótum sérfræðiþjónustu frá TRÖPPU.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum leikskólakennara og sambands íslenskra sveitarfélaga.
Vakin er athygli á því að ef við náum ekki að ráða leikskólasérkennara og leikskólakenna kemur til greina að ráða annað háskólamenntað fólk eða leiðbeinendur. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Júlía Valdimarsdóttir leikskólastjóri í síma 450 2343 og 833 8343, eða á netfangi araklettur@vesturbyggd.is