Vesturferðir ehf leitar af framkvæmdastjóra með þekkingu á markaðsmálum frá og með 1. febrúar 2022. Næsti yfirmaður framkvæmdastjóra Vesturferða er sitjandi stjórn. Vesturferðir er ferðaskrifstofa og ferðaskipuleggjandi sem sér um að bóka og halda utan um fjölbreytta afþreyingu á Vestfjörðum. Þar að auki hafa Vesturferðir verið í fararbroddi þegar kemur að því að þróa og skipuleggja ferðir fyrir skemmtiferðaskipafarþega. Ísafjarðarhöfn er ein af þremur vinsælustu höfnum landsins og því mikilvægt verkefni Vesturferða að nýta þjónustu sem flestra á svæðinu og tryggja dreifingu inn í nærsamfélagið.
- Dagleg stjórnun og yfirumsjón með starfsemi fyrirtækisins
- Umsjón með öllu markaðs- og sölustarfi fyrirtækisins
- Vöruþróun í samstarfi við ferðaþjónustu á svæðinu
- Samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila
- Samningagerð
- Önnur verkefni í samráði við stjórn
- Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af ferðaþjónustu
- Reynsla af fjármálum og rekstri fyrirtækja
- Þekking á markaðssetningu í ferðaþjónustu
- Leiðtogahæfni og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti. Önnur tungumálakunnátta er kostur
- Rík aðlögunarhæfni og geta til að starfa undir álagi
Tekið er á móti umsóknum, ásamt ferilskrám á umsóknarvef Alfreðs.
Frekari upplýsingar veitir Henný Þrastardóttir, stjórnarformaður Vesturferða í síma 691 6583. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Vesturferðir eru með skrifstofu á Ísafirði og gert er ráð fyrir að framkvæmdastjóri búi á Vestfjörðum.