Vesturferðir ehf. leitar að sölu- og þjónustufulltrúa
Ferðaskrifstofan Vesturferðir ehf. sér um sölu báts- og gönguferða um Hornstrandir og Jökulfirði. Vesturferðir ehf. tekur einnig á móti stórum hluta þeirra skemmtiferðaskipa sem heimsækja norðanverða Vestfirði.
Við erum að leita að einstaklingi, sem hefur ríka þjónustulund, hefur áhuga á ferðafólki, ferðaþjónustu og útivist, hugsar í lausnum og skilur að þolinmæðin sé dyggð. Um er að ræða 100% starf, með ráðningu frá 1. mars 2022. Helsti álagstími starfsseminnar er maí – ágúst.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Dagleg sala og utanumhald á ferðum sem Vesturferða bjóða upp á.
- Samskipti við viðskiptavini, birgja og aðra samstarfsaðila.
- Aðstoða viðskiptavini við að setja saman gönguferðir inn á Hornstrandarsvæðið.
- Þróun nýrra ferða um Vestfirði, í samstarfi við annað starfsfólk.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Góð almenn tölvukunnátta æskileg, (word og excel).
- Gott vald á enskri tungu, í máli og riti.
- Frumkvæði, nákvæmni, sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð.
- Reynsla í ferðaþjónustu æskileg.
- Þekking á landafræði Vestfjarða kostur.
Sótt er um á alfred.is til og með 26. desember 2021. Með umsókninni skal fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf. Nánari upplýsinar veitir Guðmundur Björn Eyþórsson (gudmundur@vesturferdir.is).