07. júní 2024
Störf í boði
Starfsfók í fiskvinnslu
Vilji fiskverkun ehf er nýtt fiskvinnslufyrirtæki á Hólmavík í Strandabyggð sem er að hefja starfsemi.
Starfsfólk óskast til almennra fiskvinnslustarfa.
- Almenn fiskvinnsla felur m.a í sér störf á vélum eins og flökunarvélum og hausurum og svo snyrtingu og niðurhlutun fiskflaka, röðun á færiband og pökkun.
Kostur er ef viðkomandi er vanur snyrtingu fiskflaka eða hefur unnið við vinnslu sjávarafurða.
Gerð er krafa um íslensku- eða enskukunnáttu.
Laun greidd samkvæmt kjarasamningum.
Ráðningar miðast við 15. júní 2024 eða þegar vinnsla er orðin standsett.
Umsóknir skal senda á netfangið viljifiskverkun@gmail.com.
Ef þörf er á frekari upplýsingum má hafa samband í s. 845-2748.
F.h. Vilja Fiskverkunar ehf
Björk Ingvarsdóttir