18. desember 2024
Störf í boði
Félagsþjónusta Bolungarvíkurkaupstaðar auglýsir eftir starfsmanni á Ból, sem er heimili fatlaðs og langveiks ungs manns. Óskað er eftir starfsmanni í 60-80% starfshlutfall í afleysingar í eitt ár, með möguleika á áframhaldandi starfi. Um er að ræða vaktavinnu á þrískiptum vöktum.
- Reynsla af umönnunarstörfum er æskileg.
- Menntun sem nýtist í starfinu er kostur.
- Viðkomandi þarf að vera eldri en 20 ára.
- Óskað er eftir einstaklingi sem er fljótur að læra, ábyrgur og góður í mannlegum samskiptum.
Á Bóli vinnur öflugur starfsmannahópur á sólahringsvöktum. Nýir starfsmenn fá góða þjálfun og bakvakt er til staðar. Vinnuaðstaða á Bóli er eins og best er á kosið.
Umsóknir eða fyrirspurnir sendist til:
Guðnýjar Hildar Magnúsdóttur, gudnyhildur@bolungarvik.is