Fara í efni

Byggðasafn Vestfjarða - Sérfræðingur á safni

Störf í boði

Byggðasafn Vestfjarða auglýsir eftir sérfræðingi í 50% starf á starfsstöð safnsins í Neðstakaupstað á Ísafirði. Vinnutími er sveigjanlegur og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar 2025.

Sérfræðingur á safni annast, ásamt forstöðumanni, daglega umsjón Byggðasafns Vestfjarða og varðveislu muna safnsins. Hann hefur umsjón með söfnun þjóðlegra muna, skrásetningu þeirra og viðgerð, sem og móttöku gesta safnsins. Hann sér um að safnið sé til sýnis almenningi á tilteknum tímum og starfar samkvæmt safnalögum.

Helstu verkefni:

  • Sér um söfnun, skráningu og forvörslu gripa til samræmis við safnalög
  • Hefur ásamt forstöðumanni, umsjón með gerð kynningarefnis og sér um kynningarmál safnsins
  • Umsjón vefmiðla safnsins
  • Hefur frumkvæði að lausn verkefna á því sviði sem undir hann heyrir
  • Hefur með höndum verkstjórn og eða þjálfun starfsmanna eftir þörfum
  • Rækir samstarf við önnur söfn innan héraðs sem utan
  • Vinnur samkvæmt lögum og reglugerðum sem um safnið gilda hverju sinni sem og siðareglum minjasafna
  • Fylgist með ástandi búnaðar og muna sem eru í hans forsjá og gerir tillögur að viðhaldi og endurnýjun.

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Menntun á ábyrgðarsviði safnsins eða reynsla af sambærilegum störfum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Skipulagshæfni
  • Gott vald á íslenskri tungu í ræðu og riti
  • Góð færni í ensku, önnur tungumál kostur
  • Góð almenn tölvuþekking

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóna Símonía Bjarnadóttir, forstöðumaður Byggðasafnsins í gegnum tölvupóst á jona@isafjordur.is.

Umsóknir skulu sendar til Jónu á fyrrgreint netfang. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af prófskírteinum.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-