Hafnir Ísafjarðarbæjar auglýsa laust til umsóknar 100% starf skipstjóra. Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar 2025. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf 1. mars 2025 eða eftir nánara samkomulagi.
Hafnir Ísafjarðarbæjar eru fjórar, þ.e. á Ísafirði, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri og er öll grunnþjónusta í boði á þessum stöðum. Megin starfsstöð skipstjóra verður á Ísafjarðarhöfn en viðkomandi mun einnig sinna verkefnum á öðrum höfnum bæjarins þegar svo ber undir. Næsti yfirmaður er hafnarstjóri.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Fer með stjórn lóðsbáts Ísafjarðarbæjar og ber almenna ábyrgð í samræmi við skyldur skipstjóra
- Hefur umsjón með lóðsbát hvað varðar viðhald og umgengni og annast ýmis minniháttar viðhaldsverkefni s.s. málningu, þrif o.fl.
- Sér um afgreiðslu rafmagns til skipa og annarra þeirra sem þurfa rafmagn á hafnarsvæðinu
- Les af orkumælum og færir hafnarstjóra þær upplýsingar til reikningagerðar
- Ber ábyrgð á að afli sé rétt vigtaður og rétt skráður í aflaskráningarkerfið GAFL
Skipstjóri annast að auki ýmis verkefni sem hafnarstjóri felur honum, s.s. viðhald á eignum og mannvirkjum hafnarinnar og aðstoð við festarþjónustu eftir því sem því verður við komið.
Hæfniskröfur:
- Skipstjórnarréttindi til stjórnar skipa allt að 24m lengd hið minnsta (A – réttindi)
- Slysavarnaskóli sjómanna
- Góð samskiptafærni og jákvætt viðmót
- Skipulagsfærni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Bílpróf, stærri vinnuvélaréttindi kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta er nauðsynleg, önnur tungumál kostur
- Dugnaður, vinnusemi og sveigjanleiki
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hilmar K. Lyngmo, hafnarstjóri í síma 450-8081 eða í gegnum tölvupóst á hofn@isafjordur.is.
Umsóknir skulu sendar til Hilmars á ofangreint netfang. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af viðeigandi réttindum/prófskírteinum.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um störfin. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-