Óskum eftir leikskólakennara eða leikskólaliða
Við á leikskólanum Eyrarskjóli óskum eftir leikskólakennara eða leikskólaliða í 100% starf og þarf viðkomandi að getað hafið störf í Október 2024.
Hefur þú gaman að börnum?
Finnst þér gaman að leika þér með leir? Kubba? Skapa?
Finnst þér prumpubrandarar enn fyndnir?
Þá er þetta rétti staðurinn fyrir þig!
Kæri vinur/vinkona, vertu velkomin á Leikskólann okkar Eyrarskjól á Ísafirði! ☀️
Við leitum að jákvæðum og lífsglöðum einstakling sem til er í að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika.
Viðkomandi þarf að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi.
Leikskólinn Eyrarskjól er 5 kjarna leikskóli staðsettur á Ísafirði þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Hjallastefnunnar.
Í Eyrarskjóli er skemmtilegt starfsfólk, einstök vinnustaðamenning og jákvæður skólabragur.
- Að vinna að uppeldi og menntun ungra barna
- Hafa gaman í vinnunni
- Leikskólakennari eða önnur uppeldismenntun
- Reynsla af vinnu með börnum
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði í starfi
- Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
- Starfsfólk er í fríu fæði
- Vinnustytting