Ísafjarðarbær auglýsir laust til umsóknar 100% starf skipulags- og umhverfisfulltrúa hjá sveitarfélaginu. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf í vaxandi sveitarfélagi. Leitað er eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Skipulags- og umhverfisfulltrúi starfar á umhverfis- og eignasviði bæjarins og næsti yfirmaður er sviðsstjóri.
Ísafjarðarbær er bær í sókn og hefur upp á margt að bjóða. Má þar nefna öfluga grunn- og leikskóla, menntaskóla, lýðskóla, fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf, öflugt tónlistar- og menningarlíf, eitt besta skíðasvæði landsins og endalausa möguleika á að njóta einstakrar náttúrufegurðar svæðisins.
Helstu verkefni:
- Samskipti við skipulagsstofnun og aðrar stofnanir sem koma að skipulagsmálum m.a. umsagnaraðila.
- Miðlun upplýsinga um skipulags- og umhverfismál til bæjarbúa
- Eftirfylgni með skipulagstillögum frá samþykkt skipulagstillögu til gildistöku skipulags
- Leiða faglega þróun og stefnumótun í skipulags- og umhverfismálum
- Umsjón með umhverfisverkefnum sveitarfélagsins
- Ábyrgð á umhverfis- og loftlagsmálum sveitarfélagsins í samræmi við stefnur í málaflokknum.
- Útgáfa framkvæmdaleyfa og eftirlit með framkvæmdaleyfisskyldum framkvæmdum.
- Undirbúningur funda skipulagsnefndar og umhverfisnefndar, útsending fundarboða og fundarritun.
- Samskipti við garðyrkjustjóra og þjónustumiðstöð vegna viðhalds grænna svæða
- Skjölun gagna, undirbúningur, upplýsingagjöf, umsjón með vinnu og afhendingu gagna til skipulagsráðgjafa.
- Grenndarkynningar á skipulagstillögum og byggingarleyfisumsóknum þar sem ekki er í gildi skipulag.
Menntun og hæfni:
- Menntun í samræmi við ákvæði 7. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 þ.e. arkitekt, byggingarfræðingur, landslagsarkitekt, tæknifræðingur, verkfræðingur eða skipulagsfræðingur
- Þekking og reynsla af skipulags- og umhverfismálum
- Góð samskiptahæfni, þjónustulund og sveigjanleiki
- Haldbær þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
- Metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð skipulagshæfni, tölvukunnátta og nákvæmni í vinnubrögðum
- Almenn ökuréttindi
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku, önnur tungumálakunnátta er kostur
Launakjör eru skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Axel Rodriguez Överby sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs í gegnum tölvupóst (axelov@isafjordur.is) eða í síma 450-8000.
Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar 2025. Umsóknir, afrit af prófskírteinum, ferilskrá og kynningarbréf skulu sendar til mannauðsstjóra á netfangið baldurjo@isafjordur.is. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-