Fara í efni

Matráður í móttökueldhúsi á Hlíf, íbúðum aldraðra

Störf í boði

Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar starf matráðs í móttökueldhúsi á Hlíf, íbúðum aldraðra. Um er að ræða 44% starf þar sem vinnutíminn er frá 10:00 til 13:10. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf 20. febrúar 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðumaður stuðningsþjónustu.

Meginverkefni

  • Framreiðsla matar
  • Uppvask, frágangur og þrif í eldhúsi

Hæfniskröfur

  • Frumkvæði og drift
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Þolinmæði, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjöl/VerkVest).

Umsóknum skal skilað til Sesselju Önnu Ólafsdóttur, forstöðumanns stuðningsþjónustu á netfangið sesseljao@isafjordur.is eða á skrifstofu hennar á Hlíf. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.

Umsóknarfrestur er til og með 11. febrúar 2025. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sesselja í síma 450-8042 eða í gegnum ofangreint tölvupóstfang. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-