Mennta- og barnamálaráðuneytið leitar að starfsfólki til að vinna við PISA (Programme for International Student Assessment), alþjóðlega menntarannsókn á vegum OECD.
Verkefnið felur í sér fyrirlögn í 10. bekkjum grunnskóla á Vestfjörðum. Unnið verður á tímabilinu 24. mars til 4. apríl 2025 og um verktakavinnu er að ræða.
Verkefnið krefst öryggis í framkomu, reynslu af starfi með börnum eða unglingum og góðrar íslenskukunnáttu. Umsækjendur þurfa að hafa ökuréttindi. Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar 2025 og umsóknir skulu sendar á pisa@mrn.is með viðfangið „PISA – Vestfirðir“.
Fyrir nánari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Gunnhildi Steinarsdóttur í gegnum pisa@mrn.is eða í síma 545 9500.