Fara í efni

Minnt á umsóknarfrest - 14. mars

Fréttir

Menningarráð Vestfjarða minnir á að frestur til að skila styrkumsóknum vegna fyrri úthlutunar ráðsins til menningarverkefna árið 2008, er til föstudagsins 14. mars næstkomandi. Í desember á síðasta ári úthlutaði Menningarráðið styrkjum í fyrsta sinn og fengu þá 52 vestfirsk menningarverkefni fjárhagsstuðning til ýmissa góðra verka. Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Vestfjörðum.

Við fyrri úthlutun 2008 hefur Menningarráð Vestfjarða ákveðið að litið verði sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:
   a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.
   b. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
   c. Samstarf milli menningarstofnanna, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
   d. Verkefni sem stuðla að þátttöku barna, unglinga og eldri borgara í listsköpun  og menningarstarfi.
   e. Verkefni sem stuðla að eflingu fagþekkingar á sviði menningar og lista.

Hér á vef Menningarráðs Vestfjarða á slóðinni www.vestfirskmenning.is er að finna allar nánari upplýsingar um verkefnastyrkina, úthlutunarreglur 2008 og yfirlit yfir síðustu úthlutun og eru umsækjendur beðnir um að kynna sér þessar upplýsingar. Þar er einnig að finna rafrænt umsóknarform til að senda umsóknir til ráðsins, en umsókn þarf að innihalda greinargóða lýsingu á verkefnum með verkáætlun, tímasetningum og áætlun um kostnað og gjöld. Á vef Menningarráðsins eru einnig margvíslegar upplýsingar um menningarlíf á Vestfjörðum og starfsemi Menningarráðsins, fréttir af atburðum og tíðindi úr menningarlífinu.

Nánari upplýsingar veitir Jón Jónsson, menningarfulltrúi Vestfjarða, í síma 891-7372 eða netfanginu menning@vestfirdir.is. Menningarfulltrúi gefur þeim sem eftir því leita ráð við gerð styrkumsókna til Menningarráðsins eða í aðra sjóði.