Fara í efni

Sýslumaðurinn á Vestfjörðum - löglærður fulltrúi

Störf í boði

Staða löglærðs fulltrúa við embætti Sýslumannsins á Vestfjörðum er laus til umsóknar.Um er að ræða um 60% starfshlutfall með mögulegri hækkun starfshlutfalls síðar.

Starfsstöð er á skrifstofu embættisins á Patreksfirði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felst einkum í lögfræðilegum verkefnum sem varða sjóði og stofnanir samkvæmt staðfestri skipulagsskr, sbr. lög nr. 1971988 og trú- og lífsskoðunarfélög, sbr. lög nr. 108/199 auk annarra verkefna sem sýslumenn sinna.

Hæfniskröfur

Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.Geta til að vinna sjálfstætt, sýna frumkvæði og vinna undir álagi.Samvinnu- og samskiptahæfni, jákvætt viðmót og sveigjanleiki.Nákvæmni og öguð vinnubrögð.Góð tölvukunnátta.Starfsreynsla sem nýtist í starfi er kostur.Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.Góð enskukunnátta.Reynsla af fjárhagsbókhaldi er kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.

Embætti Sýslumannsins á Vestfjörðum sinnir ýmsum stjórnsýsluverkefnum á Vestfjörðum sem heyra undir ríkisvaldið. Undir embættið heyra þrjár skrifstofur; á Ísafirði, Patreksfirði og Hólmavík. Starfsmenn eru nú 15 í 13,2 stöðugildum. Verkefni embættisins eru fjölbreytt og áhugaverð og kalla á mikil og góð samskipti við viðskiptavini.

Hjá embættinu er lagt upp úr góðum starfsanda og vinnuaðstöðu, símenntun og sveigjanleika í starfi.

Nánar má fræðast um embætti sýslumanna á vefnum www.island.is á slóðinni www.syslumenn.is.

Umsókn getur gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Æskilegert er að viðkomandi geti hafið stöf ekki síðar en 1. mars nk.

Öllum umsóknum verður svarað ekki síðar en að ráðningu lokinni.

Umsóknarfrestur er til og með 30. janúar 2025.

Nánari upplýsingar veitir:

Jónas B. Guðmundsson, sýslumaður - jonas.gudmundsson@syslumenn.is  sími 458 2400 / farsími 898 6794

Starfshlutfall er 60%

Umsóknarfrestur er til og með 30.01.2025

Nánari upplýsingar veitir

Jónas B. Guðmundsson, jonas.gudmundsson@syslumenn.is

Sími: 8986794

Sækja um starf