Verkstjóri þjónustustöð Patreksfirði
Starf verkstjóra við þjónustustöðina á Patreksfirði er laust til umsóknar. Þjónustustöð sér um almenna þjónustu og viðhald vega og vegbúnaðar á svæðinu. Verkstjóri hefur umsjón og eftirlit með verkefnum á þjónustustöðinni og sér til þess að þau séu unnin í samræmi við áætlanir og öryggisstefnu Vegagerðarinnar. Verkstjóri er staðgengill yfirverkstjóra.
-
Er staðgengill yfirverkstjóra
-
Gætir að öryggi starfsfólks þjónustustöðvar og vegfaranda á vinnusvæðum og fylgir öryggisreglum þar að lútandi
-
Almenn þjónusta, eftirlit og verkstjórn í viðhaldi vega og vegbúnaðar á svæði þjónustustöðvarinnar
-
Eftirlit í vetrarþjónustu með færð á vegum, upplýsingagjöf og stjórnun snjómoksturs í samvinnu við yfirverkstjóra og vaktstöð Vegagerðarinnar
-
Aðstoðar við umferðarþjónustu, birgðahald og uppgjör
-
Samskipti og eftirlit með verktökum
-
Vinnur bakvaktir í vetrarþjónustu og er aðgengilegur ef þörf skapast, s.s. vegna veðurs, náttúruhamfara og slysa
-
Almennt grunnnám, iðnmenntun æskileg
-
Reynsla af stjórnun æskileg
-
Verkstjórnarnámskeið eða sambærilegt er æskilegt
-
Meirapróf og/ eða vinnuvélaréttindi æskilegt
-
Starfsreynsla sem nýtist í starfi
-
Góð íslenskukunnátta
-
Góð enskukunnátta æskileg
-
Góð tölvukunnátta
-
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
-
Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
-
Góð öryggisvitund