08. apríl 2024
Störf í boði
Við leitum að sumarstarfsmanni í verslun Lyfju á Ísafirði.
Starfið felst í almennum afgreiðslustörfum og ráðleggingum til viðskiptavina okkar um kaup á vörum verslunarinnar. Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf þar sem í boði eru samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.
Helstu verkefni:
Helstu verkefni:
-
Almenn afgreiðslustörf
-
Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
-
Áfyllingar í verslun
-
Afhending lyfja gegn lyfseðli
-
Afgreiðsla á lausasölulyfjum og ráðgjöf um val og notkun þeirra
Hæfniskröfur:
-
Rík þjónustulund
-
Áhugi á mannlegum samskiptum
-
Jákvæðni og gott viðmót
-
Geta til að starfa undir álagi
-
Reynsla af verslunarstörfum er skilyrði
-
Reynsla af störfum í apóteki er kostur
Verslunin er opin frá 10-18 virka daga og frá 11-14 á laugardögum.
Nánari upplýsingar veitir Jónas Þ. Birgisson, lyfsali í s. 456 3009 / jonas@lyfja.is.
Farið er með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.