Fara í efni

Auglýst eftir umsóknum

Fréttir

Nú hefur verið auglýst eftir umsóknum í seinni úthlutun Menningarráðs Vestfjarða árið 2008. Umsóknarblöð má nálgast hér til hægri undir tenglinum Styrkir og þar er einnig að finna leiðbeiningar fyrir umsækjendum og úthlutunarreglur. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 3. október.

Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við síðari úthlutun ársins 2008 verði litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:
   a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.
   b. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
   c. Samstarf milli menningarstofnanna, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
   d. Útgáfa fræði- og ritverka sem lúta að menningu og sögu Vestfjarða.
   e. Útgáfa mynd- og hljóðdiska sem hafa menningarlegt gildi og sýnilega sérstöðu.

Í september verða haldin námskeið um gerð styrkumsókna á vegum Menningarráðs Vestfjarða, þar sem menningarfulltrúi mun leiðbeina um gerð umsókna og eru umsækjendur hvattir til að fylgjast með og sækja slík námskeið ef þeir hafa kost á.

Bent er á að einungis hluti umsókna fær styrki og þá þurfa að fara saman góð verkefni og góðar umsóknir, því þær eru bornar saman og metnar á samkeppnisgrundvelli. Vandið til verka - þannig næst árangur.