09. janúar 2009
Fréttir
Kórstarf Gospelkórs Vestfjarða hefst aftur eftir jólafrí á sunnudaginn 11. janúar kl. 20 í gamla barnaskólanum í Hnífsdal. „Allir gamlir félagar eru hvattir til að mæta og nýir félagar eru mjög svo velkomnir", segir í tilkynningu. Gospelkórinn hefur starfað í rúm fimm ár og hélt upp á afmælið með tónleikum í Bolungarvík síðasta vetur. Upplýsingar veitir Auður Arna í síma 847 3049.
Fréttin ef afrituð af fréttavefnum www.bb.is og breytt lítillega.