Snjáfjallasetur stendur fyrir dagskrá í tilefni af aldarminningu Steins Steinarr þann 21. júní 2008, kl. 15.00-18.00 í Dalbæ á Snæfjallaströnd við Ísafjarðardjúp.
Skáldið Steinn Steinarr fæddist að Laugalandi í Nauteyrarhreppi árið 1908 og verður þann 21. júní dagskrá honum til heiðurs í Dalbæ á Snæfjallaströnd við Ísafjarðardjúp. Þórður Helgason rithöfundur fjallar um áhrif Steins á íslenskar bókmenntir. Ása Ketilsdóttir kvæðakona sem býr á fæðingarstað Steins mun segja nokkur orð um tengsl hans við svæðið og flytja nokkur kvæða hans. Þórarinn Magnússon mun kynna áform um stofnun Steinssafns á Nauteyri og sönghópur frá Hólmavík flytur nokkur ljóða Steins sem gerð hafa verið lög við.
Loks munu Elfar Logi Hannesson og Þröstur Jóhannesson flytja á vegum Kómedíuleikhússins leikþáttinn BÚLÚLALA - öldin hans Steins sem fjallar um skáldið með söngvum og gítarundirleik. Leikmynd gerði Marsibil G. Kristjánsdóttir. Menningarráð Vestfjarða styrkti þennan viðburð.