Fara í efni

Umsóknarfrestur: Hvati sjóður

Hvati er sjóður sem veitir minni styrki til verkefna sem eiga síður möguleika á að sækja í aðra sjóði á vegum ráðuneytisins, sjá nánar hér.

Styrkjum skal úthlutað til ákveðinna verkefna á vegum félaga og samtaka til eins árs í senn. Verkefnin skulu ekki njóta lögbundins stuðnings eða falla undir sjóði eða sérstaka samninga. Þá eru hvorki veittir styrkir til nefndarsetu eða styrkir til BA/BS-, eða meistaraprófsverkefna.

Samkvæmt úthlutunarreglum mun matshópur skipaður af ráðherra meta umsóknir en horft verður til ýmissa þátta við úthlutunina, m.a. hvort verkefnin þyki hafa gildi og mikilvægi fyrir stefnu viðkomandi málaflokks, og hvort markmið og árangursmælikvarðar séu skýrir. Frekari upplýsingar um styrkhæfi, mat á umsóknum og viðmið má finna í úthlutunarreglum.

Eftirtalin gögn skulu fylgja umsókn eftir því sem við á:

• upplýsingar um umsækjanda eða umsækjendur, aðra þátttakendur og samstarfsaðila, ef einhverjir eru,
• nafn þess sem annast samskipti við ráðuneyti,
• nákvæm lýsing á verkefni, markmiðum þess og þýðingu fyrir umsækjanda og aðra,
tíma- og verkáætlun,
• fjárhagsáætlun, þar sem fram koma m.a. upplýsingar um áætlaðan kostnað, tekjur, hlutdeild annarra í kostnaði við verkefnið og styrkfé sem verkefnið hefur hlotið eða hefur sótt um,
• staðfest gögn frá samstarfsaðilum sem og önnur gögn til stuðnings umsókn