Fara í efni

Bolungarvíkurkaupstaður - Starfsmaður óskast í umönnun á Ból

Störf í boði

Félagsþjónusta Bolungarvíkurkaupstaðar auglýsir eftir starfsmanni á Ból, sem er heimili fatlaðs og langveiks ungs manns. Óskað er eftir starfsmanni í 60-80% starfshlutfall í afleysingar í eitt ár, með möguleika á áframhaldandi starfi. Um er að ræða vaktavinnu á þrískiptum vöktum.

  • Reynsla af umönnunarstörfum er æskileg.

  • Menntun sem nýtist í starfinu er kostur.

  • Viðkomandi þarf að vera eldri en 20 ára.

  • Óskað er eftir einstaklingi sem er fljótur að læra, ábyrgur og góður í mannlegum samskiptum.

Á Bóli vinnur öflugur starfsmannahópur á sólahringsvöktum. Nýir starfsmenn fá góða þjálfun og bakvakt er til staðar. Vinnuaðstaða á Bóli er eins og best er á kosið.

Umsóknir eða fyrirspurnir sendist til:

Guðnýjar Hildar Magnúsdóttur, gudnyhildur@bolungarvik.is