Fara í efni

Íslandshótel - Hótelstjóri á Fosshótel á Patreksfirði

Störf í boði

Við leitum að öflugum hótelstjóra á Fosshótel Vestfirði.

Hótelstjóri skipuleggur og stýrir daglegum rekstri hótelsins þ.á.m. gestamóttöku, bókunum, veitingastað, þrifum, viðhaldi fasteignar og mannauðsmálum. Hótelstjóri vinnur náið með aðalskrifstofu í sölu og markaðsmálum og sér til þess að hótelið uppfylli gæðastaðla og rekstraráætlun fyrirtækisins. Hótelstjóri leiðir hóp starfsmanna og ber ábyrgð á hagkvæmum rekstri með velferð og ánægju starfsmanna og gesta að leiðarljósi.

Starfstími er 1. apríl til 15. október

Hæfniskröfur

  • Árangursrík reynsla sem stjórnandi í hótel og/eða veitingarekstri.
  • Menntun á sviði hótelstjórnunar eða iðnnám í fram- eða matreiðslu kostur.
  • Afbragðs færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
  • Frumkvæði, sjálfstæði, nákvæmni og skipulag í vinnubrögðum.
  • Fjármálalæsi og greiningarhæfni.
  • Góð kerfis- og tölvukunnátta, þekking á Opera Cloud, Business Central og H3 kostur.

Ábyrgð

  • Fagleg stjórnun, leiðsögn, samræming og þróun starfsmanna.
  • Fjármál og rekstrargreiningar.
  • Þjónustu-, gæða- og öryggisstjórnun.
  • Verkefna- og ferlastýring.
  • Rekstur og viðhald fasteignar.

 

Hlutverk Íslandshótela er einstök gestrisni.

Öflug liðsheild Íslandshótela starfar samkvæmt eftirfarandi gildum:

Fagmennska - Samvinna - Hugrekki

Umsækjendur eru beðnir að senda inn umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi.

Óskir um nánari upplýsingar sendist á Hjört Valgeirsson, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs, hjortur@islandshotel.is eða Ernu Dís Ingólfsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðssviðs, ernadis@islandshotel.is

Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar 2025.

Um hótelið