Leikskólinn Tangi á Ísafirði auglýsir laust til umsóknar 100% starf leikskólakennara eða starfsmanns í leikskóla. Um er að ræða tímabundið starf til þriggja mánaða, með möguleika á framlengingu. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Tangi er leikskóli sem leggur ríka áherslu á útinám og útivist með það fyrir augum að styrkja tengingu nemenda við náttúruna og stuðla að heilsueflingu. Starfið mjög fjölbreytt, skemmtilegt og gefandi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.
Hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun
- Jákvæðni og lipurð í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Góð íslenskukunnátta
Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari.
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 28. nóvember 2024. Umsóknir skulu sendar til Jónu Lindar Kristjánsdóttur leikskólastjóra á netfangið jonalk@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréf. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Nánari upplýsingar veitir Jóna Lind, í síma 450-8295 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-