Fara í efni

Landsbankinn - Samfélagsstyrkir

Við veitum fimmtán milljónir króna í samfélagsstyrki á hverju ári. Samfélagsstyrkjunum er ætlað að styðja við verkefni á ýmsum sviðum, þar á meðal á sviði mannúðarmála, menningar og lista, menntunar, rannsókna og vísinda, forvarnar- og æskulýðsstarfs og á sviði umhverfismála og náttúruverndar.

Umsóknarferlið
Sérstök dómnefnd, skipuð fagfólki utan bankans, fer yfir umsóknirnar og er umsóknarferlið gagnsætt og faglegt.

Mikilvægt er að vanda vel framsetningu umsókna og frágang þeirra. Umsækjendur eru hvattir til að senda öll þau gögn sem geta komið að gagni við mat á umsóknum og gera þarf skýra grein fyrir því hvernig styrk yrði varið. Fleiri upplýsingar er að finna hér. 

Umsóknarfrestur rennur út 31. október 2024.

Sækja um