Fara í efni

Frá hugmynd að rekstri

Frá hugmynd að rekstri með Huldu Brynjólfsdóttir

Námskeið á vegum Leiða til byggðafestu, en í verkefninu býðst Íbúum á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra fjölbreytt fræðsla haust og vetur 2024-2025.

Hulda Brynjólfsdóttir er eigandi ullarvinnslunar Uppspuna. Hulda er búfræðingur og kennari. Alin upp í sveit og býr nú að Lækjartúni í Rangárvallasýslu. Þar reka hún og maðurinn hennar blandað bú, þar sem sauðfé og nautgripir leika lykilhlutverk. Ullarvinnsluna Uppspuna opnuðu þau árið 2017 með hinum störfum á bænum. Hún ætlar að fjalla um það að fá hugmynd og hvaða skref þarf að taka til að byrja. Hvað það er sem þarf til að stofna fyrirtæki, byggja það upp og halda því gangandi. Hulda ætlar að fara yfir þætti sem skipta máli frá því að hugmynd fæðist og yfir í starfandi fyrirtæki.

Frekari upplýsingar um verkefnið er að finna hér 

 

Tími: 17:00 -20:00

Staðsetning: Félagsheimilið Tjarnarlundur Dalabyggð.

Skráning