Fara í efni

Umsóknarfrestur - Myndlistarsjóður

Opið fyrir haustumsóknir í myndlistarsjóð 2024.

Umsóknarfrestur fyrir haustúthlutun myndlistarsjóðs 2024 er til kl. 16 mánudaginn 19. ágúst. Hlutverk myndlistarsjóðs er að veita styrki til undirbúnings verkefna og til að auðvelda framkvæmd verkefna á sviði listsköpunar og rannsókna á myndlist. Styrkir eru veittir til myndlistarfólks, sýningarstjóra, listfræðinga og sjálfstætt starfandi fagfólks á sviði myndlistar.

Hægt er að sækja um eftirtalda flokka:

  • Undirbúningsstyrkir– veittir til undirbúnings og þróunar viðamikilla verkefna sem síðar er hægt að sækja um styrk til framkvæmdar á.
  • Styrkir til sýningarverkefna – sem fara fram á afmörkuðu tímabili með skilgreint upphaf og endi.
  • Útgáfustyrkir, rannsóknarstyrkir og aðrir styrkir – veittir til rannsókna á verkum íslenskra listamanna og til útgáfu rita um íslenska listasögu og verk myndlistarmanna auk annarra verkefna sem ekki falla undir aðra liði.
  • Samkvæmt úthlutunarstefnu myndlistarráðs hafa eftirfarandi verkefni forgang við ráðstöfun fjár:

    • verkefni sem efla alþjóðlegt samstarf og kynningu á íslenskri myndlist erlendis.
    • fjölbreytt verkefni á sviði myndlistar, m.a. með tilliti til sjálfbærni og menningarlegrar fjölbreytni.
    • verkefni sem unnin eru í tengslum við myndlistarhátíðir og vinnustofur hérlendis og erlendis.
    • verkefni sem byggja á samstarfi um rannsóknir og útgáfu rita og bóka um myndlist.
    • verkefni sem styðja við framkvæmd myndlistarstefnu og þær aðgerðir sem falla undir starfssvið myndlistarráðs.

    Lágmarksupphæð styrkja er 300.000 kr og hámarksupphæð er 3.000.000 kr. Myndlistarsjóður veitir allt að 70% af áætluðum heildarkostnaði verkefna.

    Í þeim tilvikum sem sótt er um styrk vegna sýningarraða eða samsýninga eru skipuleggjendur hvattir til þess að senda inn eina umsókn fyrir verkefninu í heild, í stað umsókna frá einstökum sýnendum. Ef þátttakendur velja til að senda inn umsóknir fyrir sínu framlagi, þá er mælst til þess að ekki sé send inn umsókn vegna verkefnisins í heild.

    Hafi umsækjandi hlotið styrk úr sjóðnum áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef greinargerð hefur verið skilað.

    Að þessu sinni eru 30 milljónir til úthlutunar og tilkynnt verður um niðurstöðu í lok september.

Umsóknareyðublað

Umsóknareyðublað má nálgast hér

Vistaðar eða innsendar umsóknir eru aðgengilegar hér

Sýniseintak af umsóknarforminu má skoða hér

Í umsókn er beðið um eftirfarandi:

  • upplýsingar um umsækjanda og þátttakendur
  • ferilskrá
  • mynd sem má nota í kynningartilgangi
  • verkefnalýsingu
  • verkáætlun
  • kostnaðaráætlun og fjármögnun verkefnis

Umsóknir skulu vera á íslensku sé þess kostur, en annars má finna umsóknarform á ensku.

Vinsamlega athugið að myndlistarsjóður styrkir vinnu sérfræðinga, laun tæknimanna, efniskostnað, tækjakostnað, vef- og fjölmiðlakynningu, skráningu og ljósmyndatöku, hönnun og umbrot, prentkostnað og annað sem tengist verkefninu. Sjóðurinn styrkir ekki ferðalög, þóknun til listamanna, rekstur vinnustofu eða veitingar í tengslum við viðburði.

Gagnlegir hlekkir

Vefur myndlistarsjóðs

Reglur myndlistarsjóðs

Úthlutunarstefna myndlistarsjóðs 2022-2025

Myndlistarlög

Hafa samband

Ef upp koma fyrirspurnir varðandi umsóknarferlið, vinsamlegast sendið tölvupóst á info@myndlistarsjodur.is